Hannes að tafli í Tékklandi. Mynd: Heimasíða mótsins.

Stórmeistarinn, Hannes Hlífar Stefánsson (2517) hefur 4 vinninga að loknum 7 umferð á alþjóðlega mótinu í Budejovice í Tékklandi.  Hannes hefur gert jafntefli í þremur síðustu skákunum.

Áttunda og næstsíðasta umferð fer fram í dag. Mótinu lýkur á morgun.

Hannes teflir í lokuðum 10 manna flokki. Meðalstigin er 2440 skákstig og er Hannes þriðji í stigaröð keppenda.

- Auglýsing -