Stórmeistarinn, Hannes Hlífar Stefánsson (2517) teflir alþjólegu móti í Prag í Tékklandi. Hann hefur byrjað mjög vel en þurfti að sætta sig við jafntefli í gær á móti slóvakíska alþjóðlega meistaranum Sebastian Plischki (2352).
Hann hefur 5 vinninga að loknum 6 umferðum og hefur vinningsforskot á næstu menn.
Um er að ræða 10 manna lokaðan flokk. Meðalstigin eru 2388 skákstig og er Hannes stigahæstur keppenda.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 14)
Guðmundur Kjartansson (2496) teflir á minningarmóti um Najdorf sem fram fer í Varsjá í Póllandi.
Gummi gerði jafntefli við pólska alþjóðlega meistarann Jonasz Baum (2260). Hann hefur 4 vinninga eftir 6 umferðir og er í 20.-41. sæti.
Um er að ræða 174 manna flokk og er Guðmundur níundi í stigaröð keppenda.
- Heimasíða mótsins
- Úrslitaþjónusta
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 15)
- Auglýsing -















