Íslenskir skákmenn voru að tafli víða um Evrópu í gær föstudag, eins og alla vikuna.
Alþjóðlegi meistarinn, Vignir Vatnar Stefánsson (2359), teflir á sínu öðru alþjóðlega móti í Arandjelovac í Serbíu.
Í síðustu umferð tapaði Vignir fyrir indverska alþjóðlega meistaranum Rithvik Raja (2408). Þetta var fjórða tap Vignis í röð eftir fína byrjun. Vignir endaði með 3 vinninga af 9 mögulegum á mótinu. Indverjinn sem lagði Vigni í lokaumferðinni varð efstur með 6 vinninga ásamt gamla refnum Branko Damljanovic.
Vignir teflir í þremur 10 manna lokuðum flokkum í Serbíu. Meðalstigin í öðru mótinu, sem var að klárast, voru 2425 skákstig og Vignir var næststigalægstur keppenda.
Nú er að hlaða batteríin og koma sterkur inn í síðasta mótið!
Czech Open er í gangi í Pardubice í Tékklandi. Stórmeistararnir Hannes Hlífar Stefánsson (2517) og Guðmundur Kjartansson (2496) eru meðal keppenda.
Áttunda umferð fór fram í gær. Hannes lagði að velli pólska FIDE-meistarann Michael Fiedorek (2234) og Guðmundur vann á sama tíma sigur á tékkneska skákmanninum Rudolf Jun (2140). Hannes hefur 5,5 vinninga en Guðmundur hefur 4,5 vinning.
149 keppendur taka þátt í efsta flokki Czech Open og þar af eru 15 stórmeistarar. Hannes er áttundi í stigaröð keppenda en Guðmundur sá ellefti.
Vlastimil Babula (2563) leiðir mótið með 6,5 vinning ásamt FIDE meistaranum Dawid Czerw (2306) sem verður að teljast nokkuð óvænt. Sá er að hækka vel yfir 40 elóstig á mótinu hingað til!
Skák Guðmundar:
Sigurskák Hannesar, með nettri drottningarfórn í endann!
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 14)
FIDE-meistarinn Hilmir Freyr Heimisson (2317) tekur þátt í alþjóðlegu móti í Árósum í Danmörku.
Í umferð gærdagsins tapaði Hilmir fyrir svissneska kvenstórmeistaranum Lenu Georgescu (2257). Hilmir hefur 2 vinninga eftir 6 umferðir.
Átján keppendur taka þátt í mótinu og þar á meðal fjórir alþjóðlegir meistarar. Hilmir er fimmti í stigaröð keppenda.
Skák Hilmis Freys:
- Heimasíða mótsins
- Úrlsitaþjónusta
- Beinar útsendingar (hefjast flestar kl. 16:30).
Stórmeistarinn Henrik Danielsen (2516) tekur þátt í Þýskalandsmóti öldunga (50+) sem fram fer í 23.-31. júlí í Magdeburg.
Henrik vann sigur á Andreas Plug í áttundu umferð og leiðir nú mótið einn með 6,5 vinning.
68 keppendur taka þátt. Henrik er langstigahæstur keppenda.
Skák Henriks í áttundu umferð:


















