Enn eru tveir íslenskir skákmenn að tafli í Evrópu en tveimur mótum lauk á laugardag og einu í gær.

Alþjóðlegi meistarinn, Vignir Vatnar Stefánsson (2359), tefldi tvær umferðir í gær á sínu þriðja alþjóðlega móti í Arandjelovac í Serbíu. Vel gekk hjá Vigni, hann lagði indverska alþjóðlega meistarann Mittal Aditya (2438) í fyrri umferðinni og gerði jafntefli með svörtu við stómeistarann Dejan Pikula (2384).

Vignir er efstur á mótinu ásamt stórmeistaranum Vladimir Lazarev.

Vignir teflir í þremur 10 manna lokuðum flokkum í Serbíu. Meðalstigin í þriðja mótinu, sem var að hefjast, eru 2387 skákstig sem er örlítið veikara en fyrri mótin. Vignir er þriðji stigalægstur keppenda.

Sigurskák Vignis í 2. umferð

FIDE-meistarinn Hilmir Freyr Heimisson (2317) lauk keppni á alþjóðlegu móti í Árósum í Danmörku í gær.

Hilmir lagði danska FIDE-meistarann Jens Albert-Ramsdal (2282)

- Auglýsing -