Vignir að tafli í gær. Mynd: SMP

Vignir Vatnar Stefánsson kláraði í dag síðasta af þremur mótum sem hann tók þátt í í Arandjelovac í Serbíu.  Vignir beið lægri hlut gegn Indverjanum Rithvik R Raja í lokaumferðinni.

Vignir fékk erfiða stöðu eftir byrjunina og virtist standa höllum fæti gegn virkum mönnum hvíts. Snemma miðtafl virtist Vignir vera að leysa vandamál stöðunnar en missti þá skiptamun og Indverjinn landaði sigrinum.

Þessi Raja hefur reynst Vigni erfiður í ferðinni, Vignir fékk þrisvar svart á hann og tapaði í öll skiptin. Orðið á götunni er að þessum Indverja verði ekki boðið í mót á klakanum á næstunni 😉

Næst á dagskrá hjá Vigni er mót í Uppsölum í Svíþjóð þar sem hann hittir fyrir hóp af íslensku skákfólki.

 

- Auglýsing -