Sjöttu umferð áskorendaflokks Skákþings Íslands lauk í gær. Akureyringurinn Símon Þórhallsson fer hreinlega með himinskautum en hann vann sinn sjötta sigur í jafn mörgum skákum sem er hreint ótrúlegur árangur.
Í sjöttu umferðinni hafði Símon svart gegn teoríuhrossinu (eins og vel skólaðir skákmenn voru kallaðir í „gamla daga“) Birki Ísaki Jóhannssyni. Byrjun Símons viritst gefa til kynna að hann væri sáttur við að tefla af öryggis og jafnvel sættast á skiptan hlut. Eftir barning og tímahrak endaði sviðsmyndin á því að Símon vann enn einn sigurinn í flokknum!

Símon beitti „hröðuðum drottningarindverja“ (e. accelerated Queen’s Indian) gegn drottningarpeði Birkis. Fjórtándi leikur Símons reyndist nýjung og Birkir missti af leið til að fá hartnær unnið tafl í 19. leik með 19.Rg5! og svartur á sér líklegast ekki viðreisnar von.
Þess í stað náði Símon að gera skákina að langri baráttuskák og í tímahraki náði hann að láta riddara sinn vera fremri en biskup andstæðingsins. Staðan skömmu áður vissulega jafntefli samkvæmt tölvuforritum en „mannskepnurnar“ þurfa að finna leikina og Birkir gerði það ekki að þessu sinni.

Á öðru borði var mikilvæg skák milli Péturs Pálma Harðarsonar (2084) og Einars Hjalta Jenssonar (2349). Ef þessi skák endaði með sigri annars hvors myndi sá hinn sami blanda sér í toppbaráttuna af fítonskrafti.
Einar tefldi að krafti með svörtu og fórnaði peði í Blumenfeld-bragði. Pétur Pálmi þurfti að standa af sér stórsókn en hann hékk á peðinu og sneri taflinu sér í vil eftir mikla og langa og stranga baráttu.
Flottur og mikilvægur sigur hjá Pétri sem er nú einn í öðru sæti eftir þennan mikilvæga sigur.

Á þriðja borði var á ferðinni barátta æskunnar og reynslunnar. Stefán fékk töluverða stöðuyfirbuði sem hann færði yfir í liðsburði og stóð svo af sér sprikl Ingvars og sigldi vinningnum í hús. Ingvar hefur staðið sig vel á þessu móti en náði ekki í höfuðleður að þessu sinni.

Varaformaður Taflfélagsins virðist fá hvern efnilegan skákmanninn á fætur öðrum. Magnþrungin skák gegn Ingvari Wu í síðustu umferð sat ef til vill í Gauta en hvort sem hún gerði það eða ekki hefðu líklegast fáir átt roð í Benedikt í þessum ham.
Blikinn ungi tefldi að því er virtist fullkomna skák gegn Kóngsindverjanum og gaf í raun aldrei færi á mótspili. Benedikt á klárlega inni mikla stigahækkun ef hann getur teflt af þessum þroska!

Lenka virtist alltaf hafa stjórn á skák sinni gegn Gunnar Erik en þurfti engu að síður að hafa mikið fyrir því að sigla vinningnum heim. Gunnar gaf sig einfaldlega ekki og úr varð lengsta skák kvöldsins á sýningarborðunum. Á endanum taldi reynslan og Lenka fékk vinninginn.

Á neðri borðum var „bókin“ gamla og góða enn seig. Þó ber að minnast á sterkt jafntefli Markúsar Orra Jóhannssonar (1117) gegn landsliðskonunni Jóhönnu Björgu Jóhannsdóttur (2019). Fjölmargir aðrir efnilegir skákmenn létu sér reyndari skákmenn hafa mikið fyrir punktunum.
Mótið hedlur áfram á morgun klukkan 18:00 og stóra spurningin er, getur EINHVER stöðvað Símon? Pétur Pálmi er næstur í röðinni en hann fær svart á Símon. Pakkinn er mjög þéttur eftir það og baráttan um 2. sætið mun ráðast í lokaumferðinni!
- Heimasíða Skákþings Íslands
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast 18:00)
- Skákir mótsins (fyrstu 3. umferðir)



















