Hikaru Nakamura stóð uppi sem sigurvegari á hinu sterka St. Louis Rapid & Blitz sem er nýlokið. Mótið er jafnan undanfari Sinquefield Cup sem er alla jafna eitt sterkasta mót ársins. Vegna heimsmeistaraeinvígis síðar á árinu er Magnus Carlsen ekki meðal keppenda sem rýrir skemmtanagildið alltaf eitthvað.
Nakamura var í miklu stuði og tók forystuna í atskákinni þar sem tefld var einföld umferð, allir við alla og vinningar giltu tvöfalt.

Í hraðskákinni var Nakamura svo öruggið uppmálað, vann 6 skákir og gerði jafntefli í hinum tólf. Tefld var tvöföld umferð í hraðskákinni.

Heilt yfir tapaði Nakamura ekki einni einustu skák í skákunum 27. Þrátt fyrir sigurinn tapaði Nakamura stigum í hraðskákinni og það þýðir að Magnus Carlsen er núna stigahæsti skákmaður heims í öllum forum skákarinnar, kappskák, atskák og hraðskak. Heimsmeistarinn óskaði Nakamura til hamingju en finna má smá hæðni í kveðjunni en þeir hafa lengi eldað grátt silfur saman.

Eins og áður sagði er mótið undanfari hins sterka Sinquefield Cup sem fram fer 17. ágúst til 26. ágúst.
| Nr | Titill | Nafn | Land | Elo | Móta-afrek |
|---|---|---|---|---|---|
| 1 | GM | Fabiano Caruana | USA | 2806 | 2018 World Championship challenger |
| 2 | GM | Shakhriyar Mamedyarov | AZE | 2782 | 2013 World Rapid Champion |
| 3 | GM | Wesley So | USA | 2772 | 2016 Grand Chess Tour Winner |
| 4 | GM | Richard Rapport | HUN | 2763 | Former world No. 1-ranked junior |
| 5 | GM | Leinier Domínguez | USA | 2758 | 2008 World Blitz Champion |
| 6 | GM | Maxime Vachier-Lagrave | FRA | 2751 | 2017 Sinquefield Cup winner |
| 7 | GM | Peter Svidler | RUS | 2714 | 8× Russian Chess Champion |
| 8 | GM | Jeffery Xiong | USA | 2710 | 2016 World Junior Champion |
| 9 | GM | Samuel Shankland | USA | 2709 | 2018 U.S. Chess Champion |
| 10 | GM | Dariusz Świercz | USA | 2655 | 2011 World Junior Champion |
Dagskrá:
Allar skákir byrja klukkan 20:00 að íslenskum tíma.
Umferð 1: 17. ágúst
Umferð 2: 18. ágúst
Umferð 3: 19. ágúst
Umferð 4: 20. ágúst
Umferð 5: 21. ágúst
Hvíldardagur: 22. ágúst
Umferð 6: 23. ágúst
Umferð 7: 24. ágúst
Umferð 8: 25. ágúst
Umferð 9: 26. ágúst
Staðan á túrnum:

Bein útsending með skýringum hér:
Skákir í beinni á Chess.com/events
















