Það gekk vel hjá íslensku liðunum í 3. umferð EM taflfélaga sem fram fór í gær. Öll unnu þau sínar viðureignir. Víkingaklúbburinn og Taflfélag Reykjavíkur hafa bæði 4 stig af 6 mögulegum. Víkingaklúbburinn er í tíunda sæti og TR í því sextánda. Víkingaklúbburinn hefur 2 stig og er í 32. sæti. Viðureignir TR og SSON verða báðar í beinni í dag! Magnús Carlsen mætti til leiks í gær en hann teflir með norska klúbbnum Offerspill.

Víkingaklúbburinn vann stórsigur á Bærum Schakselskap.


Taflfélag Reykjavíkur vann öruggan sigur á austurríska klúbbnum Raika Rapid Feffernitz. Margeir Pétursson, Ingvar Þór Jóhannesson og Alexander Oliver Mai unnu sínar skákir.


Víkingar unnu De Sprenger Echernach frá Lúxemborg með minnsta muni. Davíð Kjartansson og lánsmaðurinn Símon Þórhallsson unnu.

Fjórða umferð hefst kl. 13 í dag. SSON og TR verða í beinni. SSON mætir heldur veikari sveit en TR heldur sterkari sveit. Víkingaklúbburinn mætir heimamönnum í sveitinni Gostivar.




















