Vignir Vatnar að tafli á Íslandsmóti skákfélaga. Mynd: Ómar Óskarsson.

Stórmeistarinn Hjörvar Steinn Grétarsson (2597) og alþjóðlegi meistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2383) berjast um sigurinn á Haustmóti TR og eru að stinga aðra keppendur af. Fimmta umferð fór fram í gær. Hjörvar hefur fullt hús en lagði Jón Árn Halldórsson (2103) að velli í gær. Vignir Vatnar hefur 4½ vinning en hann vann Magnús Pálma Örnólfsson (2211).

Jón Árni, Dagur Ragnarsson (2376) og Lenka Ptácníková (2127) eru í 3.-5. sæti með 3 vinninga.

Sjötta umferð fer fram á morgun. Þá mætast meðal annars Dagur-Vignir og Sævar-Hjörvar og

Opinn flokkur

Arnar Milutin Heiðarsson (1916) og Jóhann H. Ragnarsson (1912) eru efstir og jafnir með 4½ vinning. Jóhann Jónsson (1778) er þriðji með 4 vinninga.

Mótið á Chess-Results.

Heimasíða TR.

- Auglýsing -