Ingvar til vinstri að hugsa næsta leik. Adam Omarsson honum á hægri hönd. Mynd: IÞJ

EM ungmenna í netskák hófst í gær á Tornelo-skákþjóninum. Nítján íslensk ungmenni í sex aldursflokkum taka þátt í mótinu. Benedikt Briem (u16) og Ingvar Wu Skarphéðinsson (u14) hófu mótið með sigri í fyrstu umferð. Ingvar vann austurríkismann sem var 447 skákstigum hærri en hann. Katrín María Jónsdóttir (u14) sat yfir og fékk frían vinning en aðrar skákir töpuðust enda flestir íslensku keppendanna að tefla við mun stigahærri andstæðinga.

Íslenski hópurinn. Mynd: GB

Úrslit 1. umferðar

 

Tvær umferðir fara fram í dag. Sú fyrri hófst kl. 8 og síðari hefst kl. 15.

Tefld er kappskák og er mótið reiknað til skákstiga. Í fyrsta skipti þar sem Íslendingar tefla netskák sem reiknuð er til alþjóðlegra skákstiga.

Ýmsar leiðir eru að til að fylgjast með mótinu. Í síma er afar þægilegt að nota appið Followchess.

- Auglýsing -