Stórmeistarinn Guðmundur Kjartansson (2433) er í 10.-16. sæti með 4,5 vinninga eftir 7 umferðir á alþjóðlega mótinu í Fagranesi í Noregi.
Guðmundur vann sænska FIDE-meistarann Fredrik Lindh sjöundu umferð í gær.
Áttunda og næstsíðasta umferð fer fram í dag. Þá teflir Guðmundur við norska alþjóðlega meistarann Erlend Mikalesen (2373)
68 keppendur taka þátt í efsta flokknum og þar á meðal eru 11 stórmeistarar. Guðmundur er tólfti í stigaröð keppenda.
- Heimasíða mótsins
- Úrslitaþjónusta
- Beinar útsendingar (hefjast flestar kl. 12)
- Auglýsing -