Íslensku ungmenninn að tafli í 2. umferð í morgun. Mynd: IÞJ

Ágætlega gekk í 2. umferð EM ungmenna í netskák sem fram fór í morgun. Átta vinningar af 19 mögulegum komu í hús. Jósef Omarsson (u10), Matthías Björgvin Kjartansson (u12), Guðmundur Orri Sveinbjörnsson (u12), Guðrún Fanney Briem (u12), Gunnar Erik Guðmundsson (u14) og Alexander Oliver Mai (u18) unnu öll. Adam Omarsson (u14) og Benedikt Briem (u16) gerði jafntefli.

Benedikt er efstur íslensku krakkanna með 1½ vinning.

Úrslit dagsins

Þriðja umferð hefst kl. 15 í dag.

Tefld er kappskák og er mótið reiknað til skákstiga. Í fyrsta skipti þar sem Íslendingar tefla netskák sem reiknuð er til alþjóðlegra skákstiga.

Ýmsar leiðir eru að til að fylgjast með mótinu. Í síma er afar þægilegt að nota appið Followchess.

- Auglýsing -