Tveir góðir Vignir Vatnar þungt hugsi. Mynd á vegg er af Bent Larsen, teiknuð af Svölu Sólveig.

Alþjóðlegi meistarinn, Vignir Vatnar Stefánsson (2399), vann sænska stórmeistarann Stellan Brynell (2431) í áttundu og næstsíðustu umferð afmælismóts ØBRO-skákklúbbsins sem fram fór í gær. Vignir hefur 5½ vinning og er í þriðja sæti. Gauti Páll Jónsson (2045) tapaði fyrir Hollendingnum Henrik Porte (2170) og er í 17.-20. sæti með 3½ vinning.

Níunda og síðasta umferð fer fram í dag og hófst kl. 10. Vignir er í beinni en hann teflir við ungverska stórmeistarann Adam Kozak (2516). Gauti mætir danska alþjóðlega meistaranum og KR-ingnum Kassa Korley (2407).

 

26 keppendur taka þátt í mótinu og þar af 5 stórmeistar. Vignir er áttundi í stigaröð keppenda en Gauti er stigalægstur keppenda.

- Auglýsing -