Alþjóðlegi meistarinn, Vignir Vatnar Stefánsson (2399), endaði í þriðja sæti á afmælismóti ØBRO-Skákklúbbsins í Kaupmannahöfn sem lauk í gær. Vignir gerði jafntefli við ungverska stórmeistarann Adam Kozak (2516) í lokaumferðinni og endaði með 6 vinninga í umferðunum níu. Mjög góð frammistaða sem samsvaraði 2455 skákstigum. Vignir hækkar um 8 stig fyrir hana.
Gauti Páll Jónsson (2045) tapaði danska alþjóðlega meistaranum og KR-ingnum Kassa Korley (2407) í lokaumferðinni. Gauti endaði í 21. sæti með 3½ vinning. Hann hækkar um heil 22 skákstig fyrir frammistöðu sína.
26 keppendur tóku þátt í mótinu og þar af 5 stórmeistar. Vignir var áttundi í stigaröð keppenda en Gauti var stigalægstur keppenda.
Þeir halda nú heim á leið og tefla í 2. umferð Y2000-mótsins í á miðvikudaginn. Vignir heldur í framhaldinu til Svíþjóðar þar sem hann teflir í Hasselbacken og Uppsölum. Vignir þarf að taka yfirsetu 3. umferð Y2000-mótsins en kemur svo aftur inn í 4. umferð að loknu Svíþjóðarævintýrinu.
















