Stórmeistarinn, Hjörvar Steinn Grétarsson (2577) gerði jafntefli við úkraínska stórmeistarann Andrei Volokitin (2652) í fyrstu umferð FIDE Grand Swiss-mótinu sem fram fór í dag. Hjörvar hafði hvítt og var jafntefli samið eftir 45 leiki án mikilla átaka.

Sitthvað var um óvænt úrslit. Á efstu borðunum voru það aðeins Fabiano Caruana (2800) og Alireza Firouzja (2770) sem unnu. Af 54 skákum í opna flokknum lauk 20 með hreinum úrslitum.
The round 1 games of the 2021 FIDE https://t.co/H5lI2q7beO Grand Swiss ended after almost seven and a half hours of play.
Round 2 starts tomorrow at 13:00 CEST. #GrandSwiss2021
Results, standings and pairings: https://t.co/IXYg9BqaPB pic.twitter.com/ejoIjJUpu0— International Chess Federation (@FIDE_chess) October 27, 2021
Í 2. umferð, sem fram fer á morgun, teflir Hjörvar við norska stórmeistarann Aryan Tari (2646) og hefur svart.
108 keppendur taka þátt í opna flokknum og þar af eru 107 stórmeistarar! Hjörvar er nr. 96 í stigaröð keppenda sem segir margt um styrkleika mótins.
- Heimasíða mótsins
- Úrslitaþjónusta
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 11)















