Stórmeistarinn, Hjörvar Steinn Grétarsson (2577) tapaði fyrir norska stórmeistaranum Aryan Tari (2646) í 2. umferð FIDE Grand Swiss sem fram fór í Riga í Lettlandi í gær. Spennandi skák þar sem Hjörvar var lengi í köðlunum en varðist vel í vondri stöðu sem þó dugði ekki til og tap staðreynd eftir 64 leiki.
Þriðja umferð fer fram í dag og hefst kl. 11. Þá teflir Hjörvar við íranska stórmeistarann Amin Tabatabaei (2639).
Aðeins þrír keppendur hafa fullt hús. Það eru Frakkinn Alireza Firouzja (2770), Rússinn Alexandr Predke (2666) og Króatinn Ivan Saric (2644). Sjö skákkonur hafa fullt hús í í kvennaflokki.
🇫🇷Alireza Firouzja, 🇷🇺Alexandr Predke and 🇭🇷Ivan Saric are the only players to enter round 3 of the 2021 FIDE @Chesscom Grand Swiss with 2/2. #GrandSwiss2021
Round 3 pairings here: https://t.co/aYK7KR8u6x pic.twitter.com/iYqUqMTbdN
— International Chess Federation (@FIDE_chess) October 28, 2021
108 keppendur taka þátt í opna flokknum og þar af eru 107 stórmeistarar! Hjörvar er nr. 96 í stigaröð keppenda sem segir margt um styrkleika mótins.
- Heimasíða mótsins
- Úrslitaþjónusta
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 11)















