Mikill fjöldi íslenskra skákmanna er nú samankominn í Svíþjóð þar sem þeir taka þátt á Hasselbacken Open.

Mótið fer fram 5-7. nóvember og tefldar verða fjórar atskákir (15+5) í dag, föstudag og svo tvær kappskákir hvorn daginn á laugardag og sunnudag. Í heildina 8 umferðir.

Alls eru 154 keppendur skráðir til leiks. Þar af eru íslenskir keppendur 11 talsins. Stigahæstur er Vignir Vatnar Stefánsson sem er fjórði stigahæsti keppandi mótsins og verður vafalítið í toppbaráttunni. Aðrir sem mættir eru til Svíþjóðar eru í stigaröð: Birkir Ísak Jóhannsson, Benedikt og Stephan Briem, Arnar Milutin Heiðarsson, Agnar Tómas Möller, Gunnar Erik Guðmundsson, Mikael Bjarki Heiðarsson, Jóhann Helgi Hreinsson og Tómas Möller auk Jóns Úlfars Hafþórssonar sem búsettur er í Svíþjóð.

Auk aðalmótsins fer fram Lilla Hasselbacken Chess Open 2021 en þar taka einnig 9 íslenskir keppendur þátt.

Skak.is mun fylgjast með gangi mála.

Heimasíða aðal mótsins

Lilla Hasselbacken

- Auglýsing -