Svörtu mennirnir reyndust í aðalhlutverki í á 2. umferð Íslandsmóts öldunga (65+) sem fram fór í Faxafeninu í dag. Öllum skákum dagsins lauk með sigri þess sem stýrði svörtu mönnunum.

Jón Steinn Elíasson hafði hvítt gegn Þór Valtýssyni en þeir voru þeir einu sem fengu vinning í fyrstu umferðinni. Þór hafði betur og er því efstur með 2 vinninga eftir 2 umferðir.

Akureysku fóstrbræðrabyltunni á milli þeirra Áskels og Ólafs lauk með sigri Ólafs með svörtu mönnunum.

Önnur úrslit urðu þau að Björgvin Víglundsson lagði Pál G Jónsson með svörtu og Bragi Halldórsson lagði Harald Haraldsson að vellir, einnig með svörtu!

Þór mætir Björgvin í 3. umferðinni á meðan að Ólafur og Bragi kljást.

Mótið á chess-results

 

- Auglýsing -