Íslensku liðin byrja heldur brösuglega á Evrópumóti landsliða í skák í Slóveníu. Íslenska liðið í opnum flokki mátti sætta sig við þriðja tapið í röð með minnsta mun, 1,5-2,5 tap gegn ungu liði Litháa. Kvennaliðið þurfti að lúta í dúk gegn Ísrael 0,5-3,5.

Kvennaliðsins beið sterk ísraelsk sveit

Fyrstu tvö borðin eru sterk og mjög reynd og yngri skákkonur á hinum borðunum.
Andstæðingur Lenku var gift Arkadij Naiditsch en heimildarmenn Skak.is þekkja ekki hvort það samkomulag ríkji enn. Júlía nýtti frumkvæði í byrjuninni til að fá aðeins heilbrigðari peðastöðu. Hún tefldi skákina vel og erfitt var fyrir Lenku að fá mótspil.
Hallgerður átti eiginlega aldrei séns gegn alþjóðlega meistaranum Möshu Klinovu. Þær ísraelsku eru vel giftar en Masha er kvænt stórmeistaranum góðkunna og geðþekka, Mikhaeil Gurevich. Bæði hafa þau teflt á Íslandi fyrir Taflfélag Vestmannaeyja.
Einhvern veginn virtist svartur fá mun þægilegra tafl án þess að hvítur léki beint að sér, skák þar sem þarf að kafa aðeins og finna út hvar mistök hvíts lágu.
Jóhanna lenti í erfiðleikum í sinni skák þar sem andstæðingur hennar náði að nýta frumkvæði í byrjuninni og vinna skiptamun snemma í miðtaflinu. Þá sýndi Jóhanna úr hverju hún er gerð en mótspil og óræðar stöður hafa oft reynst henni vel. Jóhanna barðist eins og ljón og uppskar mjög erfitt jafntefli í heilum 100 leikjum! Fínt að komast á blað!
Hrund tefldi sína skák skínandi vel og yfirspilaði andstæðing sinn. Í tímahraki hefði Hrund þurft að fara með kóng sinn upp borðið og hjálpa frípeðinu á d-línunni. Þess í stað féll d-peðið með skák sem var óþarfi og smátt og smátt fjaraði undan og sú ísraelska hafði sigur sem verður að teljast eilítið ósanngjarnt.
Kvennaliðið fær Tyrki í næstu umferð.

Íslenska liðið í opnum flokki fékk lið Litháen, aftur „viðráðanleg“ sveit en heilladísirnar hafa ekki verið með íslenska liðinu til þessa á mótinu. Hjörvar hvíldi í dag.
Hannes virtist lenda í erfiðri vörn nánast alla skákina. Laurusas tefldi skákina mjög vel og saumaði jafnt og þétt að svörtu stöðunni, eiginlega módelskák í taflmennsku gegn „hangandi peðum“
Skák Jóhanns á öðru borði var allt mjög „þung“ … mikil stöðubarátta og hvorugur fékk mikil færi. Mögulega gat Jóhann reynt að halda mönnum inn á í lokin en vinningurinn líklegast aldrei í seilingarfjarlægð. Niðurstaðan jafntefli.
Eins og í viðureigninni gegn Finnum í gær byrjuðum við nokkuð snemma á að fá tapað tafl á einu borði og lentum 0-1 undir.
Helgi Áss Grétarsson lék hreint skelfilega af sér snemma tafls gegn Klabis Rokas. Líklegast hefur Helgi ætlað að loka hvítu drottninguna yfir en yfirsést að hvítur á Dxc6 og Re7+ í því tilviki. Í kjölfarið tapar svartur öðru peði, er tveimur peðum undir og staðan í molum og einfaldlega ekki viðbjargandi.
Guðmundur Kjartansson tefldi aftur best Íslendinga og vann sína skák. Guðmundur í raun teflt feykivel ef undan eru skilin svona síðustu 10% af skákinni í 2. umferð. Vonandi verður Guðmundur áfram í góðu formi og við fáum fleiri liðsmenn í gang!
Íslenska liðið í opnum flokki mætir Norður Makedóníu og er þar kjörið tækifæri að hefna fyrir knattspyrnulandsliðið! Kvennaliðið fær sveit Tyrkja.
Umferðir hefjast klukkan 14:00 að íslenskum tíma
Skákvarpið má finna hér og hefjast útsendingar 15:30-16:00

















