MC þurfti smá að rifja upp eftir 1. c4. Mynd: Maria Emelianova/Chess.com.

Magnús Carlsen (2855) vann níundu einvígisskákina gegn Ian Nepomniachtchi (2782) í dag með svörtu. Norðmaðurinn er nú í forystu, 6-3, og fátt virðist geta komið í veg fyrir að dollan endi í Noregi.

Nepo, sem hafði hvítt, breytti nú út af þegar hann lék enska leiknum, 1. c4 eftir hjálp indverska ungstirnisins Prggnanandhaa.

Tími til kominn myndu margir segja enda hefur heimsmeistaranum gengið vel að verjast spænska leiknum hingað til. Norðmaðurinn kom á óvart þegar í þriðja lék þegar hann lék 3….d4.

Rússinn tefldi hratt og var mikið inn í hvíldarherbergi á milli leikja. Eitthvað sem sumir skákskýrenda hafa gagnrýnt. Nepo vann peð en MC fékk virka stöðu í staðinn og sennilega var staðan mjög jafnteflisleg. Áskorandinn lék svo hræðilega af sér í 27. leik.

27. c5?? Hræðilegur leikur.

Norðmaðurinn trúði vart eigin augun og hristi hausinn og lék eftir nokkra umhugsun 27…c6. Biskupinn á enga undankomuleið og féll í valinn nokkru síðar.

Hér er skákin í heild sinni með skákyringum Sam Shankland.

Tíunda skákin fer fram fram á morgun. Þá hefur sá norski hvítt. Vinnur hann fjórðu skákina?

 

- Auglýsing -