Skytturnar fjórar. Mynd af Facebook-síðu Helga Áss.

Stórmeistararnir Hannes Hlífar Stefánsson (2513) og Helgi Áss Grétarsson (2405) hafa 5 vinninga að loknum sex umferðum á EM í atskák sem fram fer í Katowice í Póllandi. Félagarnir eru í 11.-36. sæti. Kolleig þeirra úr stórmeistarastétt Guðmundur Kjartansson (2402) hefur 4 vinninga. Ungstirnið Gauti Páll Jónsson (2014) hefur 3½ vinning.

Sjá Chess-Results

Í dag verða tefldar fimm síðustu umferðir mótsins. Taflmennskan hefst kl. 9.

 

- Auglýsing -