Heimsmeistaramótið í at- og hraðskák hefst í dag kl. 14 í Varsjá í Póllandi. Nánast allir sterkustu skákmenn heims taka þátt. Því miður er enginn Íslendingur meðal keppenda í ár.

Hér að neðan er tengill á beinar útsendingar frá heimasíðu mótsins.

Dagana 26.-28. desember fer fram HM í atskák (15+10) þar sem tefldar eru 13 umferðir í opnum flokki en 11 umferðir kvennaflokki. Teflmennskan hefst kl. 14 alla dagana

Dagana 29.-30. desember fer fram HM í hraðskák (3+2) þar sem tefld er 21 umferð í opnum flokki en 17 umferðir í kvennaflokki. Taflmennskan hefst kl. 14 fyrri daginn en kl. 13 þann seinni.

Hvernig er best að fylgjast með?

Útsendingar Chess24 eru í umsjón Peter Leko og Jan Gustafsson.

Fyrir þá sem hafa aðgang að NRK í gegnum Símann eða Vodafone þá er hægt að fylgjast með mótinu beint þar.

 

- Auglýsing -