85. Skákþing Akureyrar hefst sunnudaginn 30. janúar kl. 13.00. Teflt verður í Skákheimilinu í Íþróttahöllinni við Skólastíg.

Keppni í barna- og unglingaflokki hefst þó strax föstudaginn 28. janúar (sjá sérstaka auglýsingu um það mót)

Fyrirkomulag mótsins mun að nokkru leyti mótast af fjölda þátttakenda, en stefnt er að því að tefla 7-9 umferðir. Sigurvegarinn mun hljóta sæmdarheitið „Skákmeistari Akureyrar 2022“.  Mótið er öllum opið, bæði ungum sem gömlum.

Umhugsunartími verður 90 mínútur á skákina, auk þess sem 30 sekúndur bætast við tímann fyrir hvern leik (90+30).

Þátttökugjald er kr. 3.000 fyrir skuldlausa félagsmenn, kr. 4.000 fyrir aðra. Þátttaka er ókeypis fyrir þá unglinga sem greitt hafa æfingagjald.

Mótið verður reiknað til alþjóðlegra skákstiga.

Skráning er í netfangið askell@simnet.is eða á facebook síðu Skákfélags Akureyrar. Einnig er hægt að skrá sig á skákstað eigi síðar en 15 mínútum fyrir upphaf fyrstu umferðar.

Dagskrá í verður sem hér segir: (ath. að fjöldi umferða er óviss þar til lokaskráning liggur fyrir.)

  1. umferð sunnudaginn 30.janúar    kl. 13.00
  2. umferð fimmtudaginn 3.febrúar   kl. 18.00
  3. umferð sunnudaginn 6.febrúar    kl. 13.00
  4. umferð fimmtudaginn 10.febrúar  kl. 18.00
  5. umferð sunnudaginn 13.febrúar   kl. 13.00
  6. umferð fimmtudaginn 17.febrúar  kl. 18.00
  7. umferð sunnudaginn 20.febrúar   kl. 13.00
  8. umferð fimmtudaginn 24.febrúar  kl. 18.00 (til vara)
  9. umferð sunnudaginn 27.febrúar   kl. 13.00 (til vara)

Þegar fjöldi keppenda liggur fyrir getur mótsstjóri gert minniháttar breytingar á dagskrá og fyrirkomulagi til að auðvelda framkvæmd mótsins.  Einnig er fyrirvari um minniháttar breytingar/frestanir ef ef upp koma veikindi og/eða keppendur skyldu lenda í sóttkví.

Þátttaka í mótinu er öllum heimil en Skákmeistari Akureyrar getur aðeins sá orðið sem er búsettur á Akureyri og/eða er fullgildur félagi í Skákfélagi Akureyrar.

Núverandi Skákmeistari Akureyrar er Rúnar Sigurpálsson.

- Auglýsing -