Þröstur, Guðmundur, Hannes og Mads

Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson sigraði á skákmóti Reykjavíkurleikanna sem fram fór í Laugardalshöll. Hannes var í miklu stuði og hlaut 9½ vinning í 11 umferðum. Frábær árangur í svo sterku móti. Danski stórmeistarinn Mads Andersen varð annar með 8½ vinning. Stórmeistararnir Guðmundur Kjartansson og Þröstur Þórhallsson urðu í 3.-4. sæti með 7½ vinning.

Lenka, Ellen og Jóhanna

Sigur í kvennakeppunni unnu hin danska Ellen Fredericia Nilssen og Jóhanna Björg Jóhannsdóttir en þær hlutu 6 vinninga. Lenka Ptácníková varð í þriðja sæti með 5½ vinning.

Lokastaðan á Chess-Results

Skákir mótsins 

Mikið var um óvænt úrslit á mótinu. Gauti Páll Jónsson átti frábært mót.

Í dag fer fram landskeppni Íslendinga, Dana, Norðmanna og Svía. Þar verður teflt á karla og kvennaborði.  Teflt er eftir útsláttarfyrirkomulagi.  Tefld verður atskák og hraðskák komi til bráðabana. Íslendingar mæta Svíum í undaúrslitum. Landskeppnin verður beint á RÚV og hefst kl. 13. Ingvar Þór Jóhannesson og Jóhanna Björg verða með skákskýringar.

- Auglýsing -