Mikill styrkleikamunur var á keppendum í fyrstu umferðinni á Skákþingi Reykjavíkur. Yfir 1000 elóstigum munaði til dæmis á efsta borði þar sem Íslandsmeistarinn Hjörvar Steinn Grétarsson (2548) hafði hvítt gegn Arnari Smára Signýjarsyni (1520). Eins og oft vill verða fara úrslit eins og Dr. Arpad Elo hefði spáð fyrir. Eina undantekningin var sigur Myrkva Stefánssonar sem er stigalaus gegn 1500 stiga andstæðingi.
Stigahæstu keppendur eru Hjörvar, fide meistarinn Sigurbjörn Björnsson (2315) og alþjóðlegi meistarinn Davíð Kjartansson (2304). Þessir þrír verða að teljast sigurstranglegastir. Aðeins 5 skákmenn til viðbótar hafa yfir 2000 elóstig og því hefur mótið oft verið þéttskipaðra
2. umferð fer fram föstudaginn 4. febrúar og hefst klukkan 18:30 í húsakynnum TR í Faxafeni 12.

















