Fimm umferðum af níu er nú lokið á Temprumóti TG sem er sterkt og vel skipað atskákmót sem teflt er á tveimur kvöldum. Fimm umferðir af níu voru tefldar í gær, mánudagskvöld, og síðustu fjórar verða svo tefldar fimmtudaginn 10 febrúar.
Þrír stórmeistarar taka þátt á mótinu en aðeins einn þeir er meðal fjögurra skákmanna sem eru efstir á mótinu með 4 vinninga af 5. Það er að mestu Gauta Páli Jónssyni „að kenna“ en Gauti hefur verið í feikna góðu formi á mótinu og lagt ALLA stórmeistarana þrjá að velli, geri aðrir betur! Gauti er með 4 vinninga en það var aðeins landsliðskonan Jóhanna Björg Jóhannsdóttir sem náði að leggja Gauta. Jóhanna hefur einnig 4 vinninga ásamt þeim Helga Áss Grétarssyni og Halldóri Grétari Einarssyni.
- Auglýsing -















