Alexander Oliver Mai var maður dagsins á alþjóðlegu mótunum í Serbíu í dag. Alexander er efstur ásamt tveimur öðrum eftir tvöfalda umferð dagsins.
Í fyrri umferðinni lagði Alexander að velli makedónska landsliðsmanninn og jafnframt Fjölnismanninn Nikola Nikolovski (2402). TR-ingurinn knái lét ekki hræða sig þó sá makedónski hefði lagt Hannes Hlífar að velli með svörtu á EM landsliða 2017. Hér er skákin.
Í seinni umferðinni gerði hann svo jafntefli við stórmeistarann Zlatko Ilincic (2331).

Alexander mætir svo stórmeistara í 4. umferðinni.
Hilmir Freyr Heimisson rétti úr kútnum í 2. umferð og vann sína skák.

Segja má að dagurinn hafa verið ansi strembinn hjá Hilmi en hann tefldi samtals yfir 150 leiki í dag!

Vignir Vatnar Stefánsson fer rólega af stað á GM mótinu og hefur gert jafntefli í öllum skákunum. Nóg eftir af þessu móti en kannski þarf Vignir eitt mót til að komast í gang.
Í fyrri skákinni gerði Vignir jafntefli við stigahæsta keppandann, Nikita Petrov (2561) með svörtu.

Seinni skákin var einnig frekar stutt gegn Jagadeesh Siddharth (2331) frá Singapore.

GM Flokkur Vignis á Chess-Results
IM Flokkur Hilmis og Alexanders á Chess-Results

















