Vignir Vatnar Stefánsson er nánast búinn að tryggja sér sinn annan áfanga að stórmeistaratitli. Vignir lagði rússneska alþjóðlega meistarann Evgeny Kardashevskiy að velli í dag.

Þessi sigur þýðir að Vigni nægir jafntefli með hvítu í lokaumferðinni til að tryggja áfangann.

Vignir tefldi frumlega í byrjuninni með b6 snemma tafls og virtist tefla stöðulega skemmtilega. Vignir vann peð og náði að sigla hróksendataflinu í örugga höfn. Sannarlega stórmeistaralega teflt hjá okkar manni.

Hilmir Freyr Heimisson tapaði sinni skák gegn stórmeistaranum Miroslav Markovic en
Alexander Oliver Mai gerði jafntefli í sinni skák.

Vignir nægir eins og áður sagði jafntefli í lokaumferðinni og þar mætir hann B Vignesh með hvítu en Indverjinn hefur ekki að neinu að keppa á mótinu og hefur ekki enn unnið skák (jinx).

GM Flokkur Vignis á Chess-Results

IM Flokkur Hilmis og Alexanders á Chess-Results

- Auglýsing -