
H ilmir Freyr Heimisson vann góðan sigur á alþjóðlegu móti í Serbíu sem lauk um síðustu helgi. Hann fékk 7 vinninga af 9 mögulegum og varð jafn Rússanum Averin að vinningum en hærri að stigum og er því sigurvegari mótsins. Með því náði hann þriðja og síðasta áfanga sínum að alþjóðlegum meistaratitli en hann hefur uppfyllt skilyrði til að hljóta þennan titil, m.a. það ákvæði sem kveður á um að menn skuli hafa komist yfir 2400 elo-stig á einhverjum tímapunkti. Hilmir Freyr, Vignir Vatnar og Alexander Oliver Mai skráðu sig á þrjú alþjóðleg mót í Arendljelovac í Serbíu og verkefnið var að sækja titiláfanga sem tókst í fyrstu atrennu hjá Hilmi. Það verður teljast gott hjá Vigni og Hilmi að hafa náð að landa titli alþjóðlegs meistara því síðustu tvö ár hafa ekki verið auðveld í skákinni frekar en annars staðar og allskyns takmarkanir vegna Covid sett mönnum stólinn fyrir dyrnar.
Vignir hafði náð alþjóðlega titlinum fyrir mótasyrpuna og gat sett sér það markmið að ná áfanga að stórmeistaratitli. Bólusetningarbras á landamærum Ítalíu setti þátttöku hans í hættu um skeið og hann varð að sleppa fyrsta mótinu en komst í tæka tíð til að tefla á móti nr. 2. Hann byrjaði með fjórum jafnteflum, fékk síðan vinning án taflmennsku í 5. umferð og vann í sjöttu umferð. Hann er með 4 vinninga af sex mögulegum og er í 1.-3. sæti og þarf góðan endasprett til að eiga möguleika á fyrsta stórmeistaraáfanganum. Hvað Hilmi varðar þá er það ekki óalgengt að spennufall verði þegar langþráðum áfanga er náð. Hann hefur ekki náð sér á strik og hlotið 2½ vinning úr fyrstu sex umferðunum af níu.
Alexander byrjaði hinsvegar af krafti og vann fyrstu tvær skákir sínar. Sigur hans í margþvældu „eitraða peðs afbrigði“ Sikileyjarvarnar var athyglisverður:
Arandjelovac 2022; 1. umferð:
Alexander Oliver Mai – Timur Yonal (Rússland)
Sikileyjarvörn
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Bg5 e6 7. f4 h6 8. Bh4 Db6 9. Dd2 Dxb2 10. Hb1 Da3 11. e5 dxe5 12. fxe5 Rfd7 13. Re4 Dxa2 14. Hd1 Dd5 15. De3 Dxe5 16. Be2
Alþekkt staða og meistarar á borð við Anand og Nepomniachtchi hafa leikið 16. … Bc5. En þekking Rússan virðist hafa þrotið og hann valdi:
16. … Rc6? 17. Rxc6 bxc6 18. O-O Bb4 19. Db6!
Þrumuleikur sem byggist á einfaldri hugmynd, 19. … Rxb6 20. Hd8 mát!
19. … O-O
Nú er eftirleikurinn auðveldur. En eftir 19. … Be7 20. Dxc6 Hb8 21. Bxe7 Kxe7 22. Rd6! er svartur varnarlaus.
20. Dxb4 a5 21. Dd4 Dxd4 22. Hxd4 Re5 23. Be7 He8 24. Bd6 Rg6 25. Rc5 e5 26. Ha4 Be6 27. g3 Had8 28. Hd1 Bd5 29. Bc7 Ha8 30. c4 Be6 31. Bf3 Hec8 32. Rxe6 fxe6 33. Bxc6 Ha7
Það er furðulegt að svartur skuli ekki hafa gefist upp. Staðan er gjörsamlega vonlaus.
34. Bb6 He7 35. Bd7 Hb8 36. Bc5 Hf7 37. Bxe6 Hbb7 38. Hf1 Hbc7 39. Hxa5 Rh8 40. Bd6 Hc6 41. Bxf7+ Rxf7 42. Ha8+ Kh7 43. Hxf7 Hxd6 44. Haa7
– og svartur gafst upp.
Hjörvar Steinn með fullt hús
Hjörvar Steinn Grétarsson er nær öruggur með sigur á Skákþingi Reykjavíkur en mótinu lýkur á morgun. Hjörvar hafði unnið allar sjö skákir sínar og átti að tefla við Lenku Ptacnikovu í 8. umferð í gærkvöldi. Í 2. sæti var Davíð Kjartansson með 5½ vinning og í 3.-4. sæti Lenka Ptacnikova og Benedikt Briem með 5 vinninga.
Skákþættir Morgunblaðsins birtast á Skák.is viku síðar en í blaðinu sjálfu. Þessi skákþáttur birtist 19. febrúar 2022.














