Kristján Dagur vann Adam Omarsson í sjöttu umferðinni. Þeir eru báðir í toppbaráttunni. Mynd: ÞB

Sex umferðum af níu er lokið á alþjóðlega mótinu í Kragerö í Noregi. Guðmundur Kjartansson og Símon Þórhallsson eru efstir íslensku keppendanna í titlaflokknum með 3½ vinning. Kristján Dagur Jónsson er í toppbaráttunni í stigaflokknum.

Tvær umferðir fara fram í dag og hófst sú fyrri kl. 9:15.

Titlaflokkurinn

Arnar Milutin og Gauti er meðal keppenda á mótinu. Fyrir aftan Gauta má greina Birki Ísak. Mynd: ÞB

Stórmeistarinn Guðmundur Kjartansson (2450) og FIDE-meistarinn FIDE-meistarinn Símon Þórhallsson (2245) hafa 3½ vinning.

Andri Freyr Björgvinsson (2096) hefur 3 vinninga en hann gerði jafntefli við svissneska FIDE-meistarann Daniel Fischer (2356) í gær.  Stephan Briem (2039) hefur einnig þrjá vinninga. Hann byrjarði á þremur töpum en hefur heldur betur bitið í skjaldarrendur og hefur unnið þrjár skákir í röð.

Lenka Ptácníková (2173), Birkir Ísak Jóhannsson (2103), Benedikt Briem (2079) hafa 2½ vinning.

Aðrir hafa minna en 10 íslenskir skákmenn taka þátt.

Stigaflokkurinn

Kristján Dagur Jónsson (1797) er miklu stuði. Er í 2.-6. sæti með 5 vinninga.

Benedikt Þórisson (1790) hefur 4½ vinning.

Adam Omarsson (1546) hefur 4 vinninga.

Árni Ólafsson (1397) og Ingvar Wu Skarphéðinsson (1664) hafa 3½ vinning.

Aðrir hafa minna en 8 íslenskir skákmenn taka þátt.

 

- Auglýsing -