Hraðskákmót stúlkna 2022

    0
    1155
    Hvenær:
    18. mars, 2022 @ 15:00 – 17:00
    2022-03-18T15:00:00-01:00
    2022-03-18T17:00:00-01:00
    Hvar:
    Siglingafélagið Ýmir
    Naustavör 14
    Kópavogur
    Ísland
    Gjald:
    Ókeypis

    Hraðskákmót stúlkna verður haldið í hinum glæsilegu húsakynnum Siglingaklúbbsins Ýmis, að Naustavör 14 í Kópavogi, þann 18. mars nk. og hefst kl. 15. Það er Skákskóli Íslands sem stendur fyrir mótinu í samvinnu við skákdeildir Breiðabliks og Fjölnis. Tefldar verða 9 umferðir eftir svissneska kerfinu eftir tímamörkunum 5 3 og eru glæsileg verðlaun í boði þ.á m.  ferðavinningar og áskriftir að Chess.com. Mótið er opið stúlkum á grunn- og framhaldsskólaaldri sem sótt námskeið á vegum Skákskólans en þátttakan takmarkast við 24 keppendur.

    Verðlaun:

    1. verðlaun: Ferðavinningur að verðmæti kr. 40 þús.
    2. verðlaun: Ferðavinningur að verðmæti kr. 30 þús.
    3. verðlaun: Demantsáskrift að Chess.com í eitt ár.
    4. verðlaun: Demantsáskrift að Chess.com í eitt ár.
    5. verðlaun: Demantsáskrift að Chess.com í eitt ár.

    Keppendur fæddar árið 2012 og síðar:

    1. verðlaun: Ferðavinningur að verðmæt kr. 30 þús.
    2. verðlaun: Demantsáskrift að Chess.com í eitt ár.
    3. verðlaun: Demantsáskrift að Chess.com í eitt ár.
    - Auglýsing -