Skákþing Íslands – áskorendaflokkur 2022

    0
    2233
    Hvenær:
    23. apríl, 2022 @ 14:00 – 1. maí, 2022 @ 18:00
    2022-04-23T14:00:00+00:00
    2022-05-01T18:00:00+00:00
    Hvar:
    Taflfélag Reykjavíkur
    Faxafen 12
    108 Reykjavík
    Ísland
    Gjald:
    7000
    Tengiliður:
    Skáksamband Íslands

    Áskorendaflokkur Íslandsmótsins í skák (Skákþings Íslands) fer fram við í skákhöll TR 23. apríl – 1. maíSíðasta umferðin fer fer fram á Selfossi, samhliða landsliðsflokki, sem tefldur verður í Bankanum – vinnustofu (Landsbankahúsið), Austurvegi 20.

    Áskorendaflokkur er opinn öllum.

    Verðlaun

    1. 75.000 kr.
    2. 45.000 kr.
    3. 30.000 kr

    Verðlaun skiptast eftir Hort-kerfi séu menn efstir í verðlaunasætum í áskorendaflokki. Tvö efstu sætin gefa keppnisrétt í landsliðsflokki árið 2023. Oddastigaútreikningur* ræður lokaröð sæta.

    Umferðartafla

    Sjá hér.

    Þátttökugjöld

    Þátttökugjöld eru 7.000 kr. Unglingar 16 ára og yngri (2005 og síðar) fá 50% afslátt. Titilhafar aðrir en CM/WCM fá frí þátttökugjöld. Þátttökugjöld greiðist inn á reikning 101-26-12763, kt. 580269-5409 fyrir lok skráningarfrests. Senda kvittun í netfangið skaksamband@skaksamband.is

    Skráning

    Skráning fer eingöngu fram á Skák.is – gula kassanum. Ekki verður hægt að skrá sig til leiks á skákstað. Skráningarfrestur rennur út fimmtudaginn, 21. apríl, kl. 23:59.

    Tímamörk

    90 mínútur + 15 mínútur eftir 40 leiki. 30 sekúnda viðbótartími eftir hvern leik.

    Yfirsetur

    Hægt er að taka tvær yfirsetur í umferðum 1-6 og fá fyrir hana hálfan vinning. Óska þarf eftir yfirsetunni fyrir lok umferðarinnar á undan á sannarlegan hátt.

    *Oddastig

    • Flestar tefldar skákir
    • Bucholz -1
    • Bucholz 
    • Sonnoborn-Berger
    • Innbyrðis úrslit
    • Hlutkesti
    - Auglýsing -