Atskákmót hjá TR í kvöld. Tefldar eru fimm skákir og tímamörkin eru 10 mínútur á skákina að viðbættum 5 sekúndum á hvern leik. Teflt er í einum flokki. Mótin eru öllum opin og reiknuð til alþjóðlegra atskákstiga. Teflt er í félagsheimili TR, Faxafeni 12 og taflmennskan hefst stundvíslega klukkan 19:30. Það þarf ekki að skrá sig fyrirfram, nóg að mæta á staðinn. Umsjón með mótunum hafa þeir Eiríkur K. Björnsson og Gauti Páll Jónsson. Þátttökugjald er 500kr. en frítt er fyrir 17 ára og yngri.
Veitt eru verðlaun, 3000 króna inneign í Skákbúðina, fyrir sigurvegara mótsins, og fyrir bestan árangur miðað við eigin stig (rating performance).
—–
Bandaríski alþjóðlegi meistarinn Justin Sarkar vann sannfærandi sigur með fullu húsi á Þriðjudagsmótinu 12. apríl síðastliðinn. Fyr um daginn hafði galopna Reykjavíkurskákmótið klárast og fáeinir skákþyrstir kappar mættu til leiks nánast beint eftir lokahófið: Justin Sarkar, Vitaliy Garbuz, Raphael Kracht og Max Peter Bartetlt, en þeir þrír síðastnefndu eru þýskir skákmenn um tvítugt. Í bland við erlendu gestina tóku þátt kunnuleg andlit úr íslensku skáksenunni í bland við nýliða, en fjórir íslenskir skákmenn mættu til leiks á fyrsta sinn á þriðjudagsmót, þar á meðal Stúlknameistari Reykjavíkur 2016, takk fyrir!
Gauti Páll, Vitally og Max Peter komu næstir í röðinni með fjóra vinninga. Jósef Omarsson, með 1258 atskákstig hlýtur bókaverðlaunin fyrir bestan árangur miðað við stig, en hans árangur var upp á 1716 stig.
Alls mættu 23 skákmenn til leiks. Undanfarna mánuði hafa mætt fleiri en 20 á Þriðjudagsmót, stundum 30 eða fleiri. Mótin halda áfram vikulega út maímánuð, en það verður örlítið hægt á siglingunni yfir sumarmánuðina þrjá, en í júní, júlí, og ágúst verða mótin annan hvern þriðjudag, og verður sú dagskrá auglýst betur þegar nær dregur, ásamt öðrum sumarmótum í Taflfélaginu.
Næsta Þriðjudagsmót verður þriðjudagskvöldið 19. apríl næstkomandi og hefst mótið stundvíslega klukkan 19:30.

















