Teflt er við glæsilegar aðstæður aðstæður. Mynd: DFS.

Landsliðsliðsflokkur Íslandsmótsins í skák hefst á Selfossi á morgun. Teflt verður í við glæsilegar aðstæður í Bankanum- Vinnustofu á Selfossi, sem var nýlega opnuð.

Tíu keppendur taka þátt og þar á meðal sex stórmeistarar. Stigahæstur keppenda er Hjörvar Steinn Grétarsson (2542) sem hefur titil að verja. Vann sinn fyrsta og eina titil í Kópavogi í fyrra.

Næststigahæstur er Héðinn Steingrímsson (2538) sem er þrefeldur Íslandsmeistari í skák. Sá yngsti í sögunni sem borið hefur titilinn þegar hann vann árið 2000 í Höfn í Hornafirði, aðeins 15 ára. Hann vann titilinn síðast árið 2015.

Hannes Hlífar Stefánsson (2525) er þriðji í stigaröð keppenda. Hann er jafnframt sigursælastur allra í sögu Íslandsmótanna en hann er þrettánfaldur Íslandsmeistari í skák. Síðast vann hann titilinn á Akureyri árið 2019.

Auk þessara þriggja taka þátt tveir fyrrum Íslandsmeistarar. Guðmundur Kjartansson (2430) sem er þrefaldur meistari, síðast 2017, og Þröstur Þórhallsson (2422) sem hampaði titlinum árið 2012.

Sjötti stórmeistarinn sem tekur þátt er Bragi Þorfinnsson (2419),sem hefur aldrei náð titlinum sjálfur en hefur oft verið mjög nærri því.

Flokkinn fylla 4 ungir og bráðefnilegur skákmenn.

Alþjóðlegi meistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2501) er stigahæstur þeirra og jafnframt fjórði stigahæsti keppandi mótsins. Hann er með tvo stórmeistaraáfanga og vantar aðeins einn til þess að vera útnefndur stórmeistari. Til þess þarf sjö vinninga á mótinu.

Alþjóðlegi meistarinn Hilmir Freyr Heimisson (2321), FIDE-meistarinn Símon Þórhallsson (2252) og Alexander Oliver Mai (2177) eru stigalægstir keppenda en til alls líklegir.

Fyrsta umferðin hefst kl. 14 í morgun. Tómas Ellert Tómasson, formaður bæjarráðs Árborgar, leikur fyrsta leik mótsins. Mótinu lýkur 1. maí nk.

Dregið verður um töfluröð í dag kl. 14.

Beinar útsendingar og lýsingar verða frá mótinu. Nánar um það á morgun.

Keppendalistinn

- Auglýsing -