Sinquefield Cup hófst í St. Louis á laugardaginn. Um er að ræða eitt af hinum Grand Chess Tour-mótum en boðsgesturinn er að þessu sinni enginn sjálfur en heimsmeistarinn, Magnus Carlsen (2842).

Í fyrstu umferð vann Mamedyarov (2801) Wesley So (2780) og Aronian (2767) hafði sigur á Karjakin (2773). Öðrum skákum lauk með jafntefli. Í annarri umferð, sem tefld var í gærkveldi, vann Carlsen sigur á Karjakin í 6½ tíma skák en öðrum skákum lauk með jafntefli.
Heimsmeistarinn er því efstur ásamt Aseranum og Armenanum.

Þriðja umferð fer fram í kvöld og hefst kl. 18. Þá mætast meðal annars Aronian-Carlsen og Mamedyarov-Caruana (2822).
- Heimasíða mótsins
- Beinar útsendingar (kl. 18)
- Auglýsing -















