Iðunn Helgadóttir (1570), sem teflir í u16-flokki, og Guðrún Fanney Briem (1416), sem teflir í u-13 flokki, eru báðar í 1.-2. sæti á NM stúlkna að loknum þremur umferðum. Tvær síðustu umferðirnar fara fram í dag.

U-16 flokkurinn
Iðunn Helgadóttur fékk 1½ vinning í umferðunum tveimur í gær. Katrín María Jónsdóttir fékk 1 vinning.
U-13 flokkurinn
Guðrún Fanney Briem (1416) vann báðar skákirinar í gær og er efstur ásamt hinni dönsku Sarah Sima Derlich (1441). Þær mætast í fyrri umferð dagsins.
Emilía Embla B. Berglindardóttir, Sigrún Tara Siguðardóttir hafa 1 vinning. Þórhildur Helgadóttir er ekki komin á blað.
Tvær umferðir eru tefldar í dag. Sú fyrri hófst kl. 8 og sú síðari hefst kl. 13.
Fararstjóri og þjálfari stúlknanna er Jóhanna Björg Jóhannsdóttir.

















