Stórmeistarinn Hjörvar Steinn Grétarsson (2566) vann sigur á Boðsmóti TR sem lauk í gær. Stórmeistarinn hlaut 4½ vinning í umferðunum fimm. Gerði jafntefli við sigurvegara Boðsmóts TR 1972, Braga Halldórsson í lokaumferðinni.

Jósef Ómarsson (+51) hækkaði mest allra á stigum á mótinu. Næstir komu Kristján Örn Elíasson (+35), en hann lagði báða Alexandranna að velli, Benedikt Þórisson (+23), Bragi Halldórsson (+23) og Guðni Stefán Pétursson (+18).

17 keppendur taka þátt. Skákstjórar voru Ríkharður Sveinsson, Daði Ómarsson og Ólafur S. Ásgrímsson.
- Auglýsing -














