Hannes með sigurlaunin. Mynd: Facebook-síða Hannesar.

Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2534) vann sigur á alþjóðlegu móti í Przeworsk í Póllandi sem lauk í gær. Hannes hlaut 6½ vinning í 9 umferðum og var úrskurðaður sigurvegari eftir oddastigaútreikning.

Hannes vann pólska alþjóðlega meistarann Dariusz Mikrut (2361) í lokaumferðinni. Frammistaða Hannesar samsvaraði 2601 skákstigi og hækkar hann um 8 stig fyrir hana.

Hannes heldur nú til Prag þar sem hann teflir á alþjóðlegu móti sem hefst 10. júní nk.

Um var að ræða 10 manna lokaðan flokk þar sem meðalstigin voru 2445 skákstig. Hannes var næststigahæstur keppenda.

Stórmeistarinn Guðmundur Kjartansson (2455) teflir á alþjóðlegu opnu móti í Cattolica á Ítalíu. Gummi tapaði fyrir þýska FIDE-meistaranum Tobias Kolb (2349) í 2. umferð sem fór í gær og hefur 1 vinning. Í dag teflir hann við 16 ára Úkraínumann Oleksii Kalosha Zhiulien (2161) að nafni.

54 keppendur frá 19 löndum taka þátt og þar af 8 stórmeistarar.  Guðmundur er 10. í stigaröð keppenda.

- Auglýsing -