Stórmeistarinn Guðmundur Kjartansson (2455) vann tvær síðustu skákirnar á alþjóðlegu móti í Cattolica á Ítalíu.
Í áttundu umferð vann hann Indverjann Kulkarni Ojas (2226) en í þeirra níundu umferð vann hann írsku stúlkuna Trisha Kanyamarala (2095).
Gummi hlaut 6 vinninga í 9 umferðum og endaði í 6.-7. sæti. Frammistaða hans samsvaraði 2377 stigum og lækkar hann um 7 stig fyrir hana.
54 keppendur frá 19 löndum tóku þátt og þar af 8 stórmeistarar. Guðmundur var 10. í stigaröð keppenda.
- Auglýsing -

















