Norski heimsmeistarinn Magnús Carlsen (2864) vann sigur á Norway Chess sem lauk í gær í Stafangri. Tæpt var það því Aserinn Shakhriyar Mamedyarov (2770) veitti honum mikla keppni og var afar nærri því að leggja landa sinn Teimor Radjabov (2753) að velli í lokaumferðinni sem hefði tryggt honum sigur á mótinu.

Fyrirkomulagið var þannig að tefld var kappskák. Sigurvegarinn fær 3 stig. Geri keppendur jafntefli fá báðir 1 stig. Þá er tefldur bráðabani og fær sigurvegarinn auka hálft stig. Keppendalistinn er áhugaverður. Vegna áskorendamótsins í Madrid sem hefst 17. júní tefla áskorendurnir ekki á Norway Chess að Radjabov undanskildum.
- Auglýsing -


















