Íslensku goðsagnirnar töpuðu fyrir sveit Bandaríkjanna með minnsta mun í sjötta umferð HM öldungasveita sem fram fór í gær í Acqui Terme á Ítalíu.
Jóhann Hjartarson (2472), Margeir Pétursson (2450) og Jón L. Árnason (2412) gerðu jafntefli en Þröstur Þórhallsson (2409) tapaði fyrir Jaan Ehlvest (2517). Skák Jóns var afar æsileg og spennandi.
Íslenska liðið er nú í 6. sæti með 8 stig og 15 vinninga.
Sjöunda umferð fer fram í dag og þá mæta Íslendingar sterkri stórmeistarasveit heimamanna. Sú sveit er sú fimmta sterkasta á pappírnum. Því miður verður viðureignin ekki í beinni. Helgi Ólafsson kemur aftur inn í liðið en Jón L. Árnason hvílir.
23 sveitir taka þátt í flokki 50+. Sveit Íslands er sú fjórða stigahæsta.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast flestar kl. 13 – aðeins tvær efstu viðureignir).
- Auglýsing -















