Fabiano Caruana (2783) var afar nærri því að leggja Ian Nepomniachtchi (2766) að velli í níundu umferð áskorendamótsins sem fram fór í gær. Nepo hélt velli og hefldur því vinningsforskoti þegar aðeins þremur umferðum er ólokið.
Öðrum skákum lauk með hreinum úrslitum. Alireza Firouzja (2793), Teimor Radjabov (2753) og Ding Liren (2806) unnu allir sínar fyrstu skák á mótinu. Frakkann vann Richard Raport (2764), Aserinn hefði betur gegn Hikaru Nakamura (2760) og Kínverjinn lagði Jan-Krzysztof Duda (2750) að velli.
Baráttan virðist sem fyrr standa á milli Nepo og Caruana. Svo getur jafnvel farið að þeir mætist í heimsmeistaraeinvígi gefi Magnús Carlsen réttinn frá sér eins og hann hefur ýjað af.
Frídagur er í dag. Tíunda umferð fer fram á morgun.
- Heimasíða mótsins
- Beinar útsendingar (heimasíða) – hefjast kl. 13
- Beinar útsendingar (Chess24)
















