Íslensku goðsagnirnar töpuðu fyrir sveit Ítala í sjöundu umferð HM öldungasveita sem fram fór í gær.
Jóhann Hjartarson (2472), Margeir Pétursson (2450) og Þröstur Þórhallsson (2412) gerðu jafntefli en Helgi Ólafsson (2511) tapaði.

Íslenska liðið er í 6. sæti með 8 stig og 16½ vinning. England og Bandaríkin berjast um sigurinn. Eru í sérflokki með 13 stig.
Áttunda og næstsíðasta umferð fer fram og eru Skotar andstæðingar. Jón L. Árnason (2412) kemur inn í liðið en Jóhann Hjartarson hvílir.
23 sveitir taka þátt í flokki 50+. Sveit Íslands er sú fjórða stigahæsta.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast flestar kl. 13 – aðeins tvær efstu viðureignir).
- Auglýsing -
















