Margeir Pétursson að tafli.

Íslensku goðsagnirnar unnu sigur á móti Skotum í áttundu og næstsíðustu umferð HM öldungasveita sem fram fór í gær.

Margir Pétursson (2450) og Jón L. Árnason (2412) unnu, Þröstur Þórhallsson (2409) gerði jafntefli en Helgi Ólafsson (2511) tapaði.

Íslenska liðið er í 5. sæti með 10 stig og 19 vinninga.

Níunda og síðasta umferð fer fram í dag og eru Ungverjar andstæðignar dagsins. Jóhann Hjartarson (2472) kemur inn í liðið en Helgi Ólafsson hvílir.

23 sveitir taka þátt í flokki 50+. Sveit Íslands er sú fjórða stigahæsta.

- Auglýsing -