Héðinn Steingrímsson endaði í 5.-11. sæti á NM í skák sem lauk í gær. Gauti Páll Jónsson hefur byrjað vel á Czech Open þar sem hann tekur þátt.
NM í skák
Lokaumferðin fór fram í gær. Héðinn Steingrímsson (2513) endaði með 6½ vinning í umferðunum níu. Vann Finnann Henri Lahdelema (2254) í lokaumferðini. Árangur Héðins var stigalega á pari.
Hollendingarnar Lucas Van Foreest (2575) og Robby Kevlishvili (2508) urðu efstir og jafnir með 7½ vinning. Svíinn Seo Jung Min (2500) varð efstur Norðurlandabúa og þar með Norðurlandameistari. Hann hlaut 7 vinninga.
Norðurlandamótið í skák fór fram í Jyväskylä í Finnlandi dagana 18.-24. júlí. Mótið var jafnframt alþjóðlega mótið Heart of Finland og var opið öðrum en Norðurlandabúum. Mótið var haldið í Finnlandi í tilefni af 100 afmæli sambandsins. Þátt tóku 138 skákmenn frá 14 löndum. Þar af voru 10 stórmeistarar og 9 alþjóðlegir meistarar. Tefldar voru 9 umferðir. Héðinn var áttundi í stigaröð keppenda og næststigahæstur Norðurlandabúa.
Björgvin Jónas Hauksson (1739) hlaut 3 vinninga í flokki öldunga.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast ýmist kl. 7, 9 eða 14).
Ciudad de Sevilla
Mótinu lauk í fyrradag.
Alexander Oliver Mai (2159) vann tvær síðustu skákirnar og endaði með 6 vinninga. Árangur hans var stigalega á pari.
Þátt tóku 177 skákmenn frá 20 löndum og þar af voru 6 stórmeistarar og 19 alþjóðlegir meistarar. Mótið fór fram 16.-23. júlí. Tefldar voru 9 umferðir.
Czech Open
Gauti Páll Jónsson (2071) hefur byrjað vel á Czech Open. Eftir 3 umferðir hefur hann 2 vinninga. Vann alþjóðlega meistarann Ruediger Seger (2299) í fyrstu umferð og FIDE-meistarann Jakub Stinka (2335) í 2. umferð.
Feðginin Helgi Pétur Gunnarsson (1744) og Iðunn Helgadóttir (1508) taka þátt í b-flokki. Helgi hefur hálfan vinning en Iðunn er ekki komin á blað.
















