Ólympíuskákmótið hefst 29. júlí í Chennai á Indlandi. Ísland sendir lið í opnum flokki sem og í kvennaflokki. Fram að móti munum við fjalla um ólympíufarana – einn á dag!

Í dag kynnum við til leiks Jóhönnu Björg sem er tefla á sínu fyrsta ólympíuskákmóti.

Nafn

Jóhanna Björg Jóhannsdóttir

Félag

Taflfélag Garðabær

Aldur

29 ára

Uppáhaldsskákmaður og skákkona?

Judith Polgar og Daniil Dubov

Hvernig er þínum undirbúningi (skáklegum, andlegum, líkamlegum) háttað fyrir Ólympíumótið nú? 

Kvennalandsliðið hefur haldið fastar æfingar síðastliðna mánuði ásamt endataflsæfingum sem hafa hjálpað mikið og svo hefur Hjörvar Steinn leiðbeint mér mikið varðandi byrjanaval. Ég reyni alltaf að hafa einhverjar líkamlegar æfingar inni í ferlinu og fer oft í viku í göngutúra ásamt daglegum æfingum á róðravélinni. Það hefur mikið reynt á góðan andlegan undirbúning í þetta sinn eftir mikil áföll í fjölskyldunni en það hefur og mun hjálpa að ég hef sótt fyrirlestra hjá íþróttasálfræðingum og er í sálfræðinámi sem hefur kennt mér ýmislegt. Kvennalandsliðið er mjög samhelt lið og við höfum alltaf sutt hver aðra mjög vel á þessum mótum sem hefur hjálpað mikið á mikilum álagstímum og erfiðleikum sem geta komið upp á Ólympíumótum

Hvað eiga Indverjar marga stórmeistara? Hér er Google og öll önnur hjálpartæki bönnuð! 

80

Hversu oft hefur þú farið á Ólympíuskákmót?

Þetta verður mitt fimmta Ólympíuskákmót

Mun ManU ná meistaradeildarsæti án Christano Ronaldo?

Nei.

Hverja telur þú líklegasta til sigurs á Ólympíuskákmótinu í opnum og kvennaflokki?

Georgía í kvennaflokki og Bandaríkin í opnum flokki

Hvað er það síðasta sem þú horfðir á Netflix (eða annarri sjónvarpsveitu)?

Ghost whisperer

Mun Carlsen tefla heimsmeistaraeinvígi við Nepo á næsta ári?

Já maður verður eiginlega að hafa trú á því

Minnistæðasta skák á Ólympíuskákmóti:

Bruna Tuzi – Jóhanna í Istanbúl 2012. Var búin að vera með unnið heillengi og klúðraði því svo illa á sama tíma og aðrar stöður voru að tapast, hef sjaldan verið jafn reið og vonsvikin með sjálfan mig EN sá eitt tækifæri og andstæðingurinn minn gleymdi að stoppa peðið mitt og ég vann og liðið líka!

Hvernig finnst þér indverskur matur?

Mjög góður svo lengi sem hann er ekki alltof sterkur

Hverjum spáir þú sigri í forsetakosningum FIDE?  

Ekki hugmynd, gæti farið á marga vegu

Þekktasti Indverjinn sem þú veist um sem ekki er skákmaður?

Ghandi

Með hverjum þremur (lífs eða lifnum) skákmönnum myndir þú vilja eiga kvöldmáltíð með og af hverju?

Judith Polgar, Tal og Duda, getur ekki orðið annað en áhugaverð máltíð

Ólympíufararnir

- Auglýsing -