Friðrik Ólafsson að tafli við Bobby Fischer.

Fyrsti stórmeistari Íslendinga, og heiðursborgari Reykjavíkur, Friðrik Ólafsson, verður viðstaddur opnun Borgarskákmótsins, í dag kl. 16, í Ráðhúsi Reykjavíkur.

Í dag eru mikil tímamót fyrir Friðrik því þann 21. ágúst 1958 varð Friðrik útnefndur stórmeistari í skák.

Spennandi verður að sjá hvort Friðrik taki þátt í mótinu, í tilefni 60 áranna, eða láti sér duga að horfa á herlegheitin.

 

- Auglýsing -