Íslensku liðin töpuðu sínum viðureignum í þriðju umferðinni. Í opnum flokki tefldi íslenska liðið við sterkt lið Indlands 3 þar sem allir andstæðingar okkar voru með yfir 2600 elóstig. Kvennaliðið var hærra skrifa á pappírunum góðu heldur en Tælenska liðið en þær reyndust erfiðar og eru með ungt og upprennandi lið. Lítum á gang mála.
Opinn flokkur – Indland 3

Þrátt fyrir að vera þriðja sterkasta lið Indlands er hér á ferðinni hrikalega sterkt lið. Allir eru yfir 2600 elóstigum og ljóst að róðurinn yrði erfiður. Ég lít á skákirnar í borðaröð þar sem ég sá ekki í hvaða tímaröð skákirnar þróuðust þar sem liðin tefldu í sitt hvorum skáksalnum í þriðju umferðinni.

Hjörvar tefldi mjög góða skák gegn Ganguly og sýndi góða skilning á Najdorfnum. Á tíma var hann með hartnær strategískt unnið tafl skv. liðsstjóra liðsins en Ganguly var seigur og náði að verja erfiða stöðu og bjarga jafntefli.

Fínt að fá Hjörvar sterkan inn eftir svekkjandi slys í 2. umferðinni. Hjörvar er að tefla vel!
Hannes fór ekki í krítískasta afbrigðið gegn 7…b6 línu Indverjans í Katalan-byrjuninni. Staðan varð nokkuð róleg en Indverjinn yfirspilaði okkar mann í miðtaflinu og vann góðan sigur.
Guðmundur tefldi gegn London kerfinu og drap á f4. Slíkar stöður eru kannski í lagi í tölvunum en heldur líflausar á svart. Staðan virtist henta Gupta vel og hann hafði betur í miðtaflinu og Indverjarnir á góðu róli.

Skák viðureignarinnar var klárlega skák Helga Áss. Helgi kom vel undirbúinn til leiks og hann og Margeir liðsstjóri höfðu rætt vel „gameplanið“ og undirbúið sig vel gegn Grunfeld. Helgi var sælu peði yfir en viðurkenndi að hann hefði ef til vill stressast örlítið við tilhugsunina að vera með unnið og viljað vanda sig of mikið á köflum.

Einhverjar trufluðuastu flækjur sem sést hafa lengi hjá íslenska liðinu á Ólympíumóti komu svo upp í skákinni og var magnað að fylgjast með viðbrögðum sterkra skákmanna við stöðunni sem upp kom. (sjá skjáskot fyrir neðan skákina)
Helgi missti þráðinn en náði að redda sér eftir flækjurnar og stöðulegt jafntefli var á borðinu þar sem hrókar hvíts héldu svarta kóngnum í heljargreipum.
The craziest position of Chennai Olympiad so far. pic.twitter.com/QZQzsP2mic
— Emilchess (@EmilSutovsky) July 31, 2022

Svidler og Leko kíktu á íslensku viðureignina og viðbrögð þeirra sem hefjast á 4:49:00 við stöðu Helga Áss eru frábær!
1-3 tap líklegast of stórt miðað við stöðurnar hjá Grétarssonunum en fín taflmennska heilt yfir. Ísland reynir að koma sterkt til baka gegn Nígeríu í 4. umferðinni, þ.e. ef magakveisur setja ekki of stórt strik í reikninginn!

Kvennaflokkur – Thailand

Fyrirfram hefði þetta átt að vera auðveldur sigur á pappírunum góðu enda okkar stúlkur mun stigahærri á öllum borðum. Tæland var hinsvegar greinilega sýnd veiði en ekki gefin. Ein þeirra hafði náð í góðan punkt á móti Víetnam og það sást snemma tafls að þær tefldu allr mun betur en stigin. Ungar stelpur á uppleið greinilega.

Skák Tinnu var fyrst að klárast. Tinna lenti í óþarfa vandræðum í byrjuninni sem sú tælenska nýtti sér til að næla sér í skiptamun. Tinna sprikaði vel og náði í peð upp í og átti líklega jafntefli í endataflinu með bestu taflmennsku en fljótfærnisleg peðaframrás drap allar vonir og tap niðurstaða.
Hallgerður jafnaði leika 1-1 með öruggum sigri. Hallgerður val vel undirbúin og höfðum við rætt að leiðin sem hún valdi væri skynsömust og þetta plan með b4 var allt saman á eldhúsborðinu og í undirbúningi Hallgerðar. Góður undirbúningur skilaði svo peðsvinningi og allt sem eftir var var að passa upp á sprikl hjá andstæðingnum og svo taldi umframpeðið loks og vel rúmlega það. Góð skák hjá Hallgerði.

Lenka náði að véla peð af andstæðingi sínum og leit út fyrir að við ættum að vera örugg með allavega 2-2 jafntefli. Auk umframpeðsins var Lenka með 27 mínútur gegn 30 sekúndum andstæðingsins. Sú tælenska var hinsvegar háll sem áll og Lenka fann ekki bestu leiðina til að einfalda taflið og eins saxaðist jafnt og þétt á tíma hennar þar til þær voru báðar undir mínútu. Á sama augnabliki komst sú tælenska inn með hrókinn og Lenka fann ekkert betra en að leyfa þrátefli.

Í lokastöðunni hefði Lenka getað unnið með því að finna annaðhvort Hdc8 eða Hcc8 og skákin á e7 gerir ekkert meira en að vinna eitt peð til baka og svartur ætti að standa til vinnings. Auðvelt að sjá á hliðarlínunni og með nægan tíma en þegar klukkan tifar hratt er erifðara að sjá slíkar leiðir.

Jafntefli niðurstaðan og því miður leit staðan ekki vel út hjá Liss á þessum tímapunkti og var líðan líðsstjóra hér ekki góð þegar hann áttaði sig á því að tap gegn Tælandi væri líkegast að verða að veruleika.
Liss fékk upp undirbúning sinn en lék of hægfærum c3 leik sem gaf svörtum auðvelda tafljöfnun. Miðtaflið var í jafnvægi en þar missti Liss af peðsvinningi með Hxg7 og lék því of seint þegar það tapaði skiptamun. Hvítur hefði líklegast getið stillt upp í fortressu með bestu taflmennsku en það verður að gefa þeirri tælensku að hún tefldi skínandi vel, gerði engin mistök og nýtti frípeðið sitt.

Það er ekkert annað en áfram veginn eins og sagt er! Bæði lið fá lið frá Afríku og það á að vera lágmarkskrafa að fá sigur í bæði opnum flokki og kvennaflokki. Nígerumenn mæta okkur í opnum og Mozambique í kvennaflokki.

















