Adam vann í gær. Mynd: OS

Íslenskir skákmenn sitja sem fyrr úti að tafli. Gauti Páll tekur þátt á EM áhugamanna í Zagreb og Adam og Jósef tefla í Olomouc í Tékklandi

EM áhugamanna

EM áhugamanna fer fram í Zagreb í Króatíu dagana 14.-21. ágúst. Gauti Páll Jónsson (2071) teflir í flokki skákmanna með minna en 2300 skákstig.

Gauti gerði jafntefli við króaískan skákmann (1995) í gær. Gauti hefur 3½ vinning að loknum sjö umferðum og er í 20.-29. sæti.

Gauti stóð sig vel á hraðskákmóti í gær í Zagreb og endaði í 4.-5. sæti með 7½ vinning í 11 umferðum.

Lokastaðan á Chess-Results. 

Áttunda og næstsíðasta umferð fer fram í dag.

Gauti er nr. 23 í stigaröð 50 keppenda.

Olomouc Chess Summer 

Bræðurnir Adam (1837) og Jósef Omarssynir (1617) taka þátt í c-flokki Olomouc Chess Sumer sem fram fer 13.-20. ágúst.

Áttunda og næstsíðasta umferð fór fram í gær. Þeir unnu báðir! Adam hefur 4 vinninga en Jósef hefur 3½ vinning.

Lokaumferðin er hafin.

- Auglýsing -