Gauti Páll tekur þátt á EM áhugamanna í Zagreb. Mótinu lýkur í dag. Adam og Jósef luku þátttöku í gær í Olomouc í Tékklandi.
EM áhugamanna
EM áhugamanna fer fram í Zagreb í Króatíu dagana 14.-21. ágúst. Gauti Páll Jónsson (2071) teflir í flokki skákmanna með minna en 2300 skákstig.
Gauti Páll gerði sitt fjórða jafntefli í röð í gær og hefur alls gert sex jafntefli í átta skákum. Veðbankar spá í jafntefli í lokaumferðinni í dag.
Gauti hefur 4 vinninga og er í 20.-28. sæti. Lokaumferðin hófst kl. 7:30 í morgun.
Gauti er nr. 23 í stigaröð 50 keppenda.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast flestar kl. 13)
Olomouc Chess Summer
Bræðurnir Adam (1837) og Jósef Omarssynir (1617) tóku þátt í c-flokki Olomouc Chess Sumer sem fram fór 13.-20. ágúst.
Adam hlaut 4½ vinning og endaði í 25.-37. sæti.
Jósef hlaut 3½ vinning og endaði 45.-51. sæti.
Jósef hækkaði um 27 skákstig fyrir frammistöðu sína á mótinu.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast flestar kl. 14)